9.4.2009 | 10:27
Páskafrí
Nú er ég búin að fara til Eyja og það var alveg frábært. Jóhanna fékk að bjóða Þuríði vinkonu sinni með og þær fengu fullt af sögustundum hjá pabba o held þeim hafi bara líkað vel.
Pabbi kom með mér til baka og ætlar að stoppa í nokkra daga. Svo förum við í Hrísey og heimsækjum barnabarnið og frænku (líka Vilborgu).
Stebbi átti afmæli daginn sem ég kom heim og ég var búin að undirbúa smá veislu sem hann vissi ekki af. Jóhanna hins vegar stal senunni og fékk bráðaofnæmi og það þurfti að flytja hana á sjúkrahús með hraði. Það fór þó allt vel en við vorum í dágóða stund á spítalanum og pabbi varð að taka ða sér að taka á móti gestunum. Hann stóð sig auðvitað vel í því eins og við er að búast. Ég vona að Stebbi fyrirgefi mér að koma svona aftan að honum. Hann er ekkert vanur að vera í aðalhlutverki.
Ég gaf honum gönguskó enda erum við alltaf að ganga saman og vonnadi að við getum farið í margar góðar göngur í sumar á nýjum skóm!
Kv
Anna Magga
Um bloggið
Anna Margrét Valgeirsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.